|
Gben Guðbjörg - Hérna finnst ýmislegt |
|
Vafraðu umÉg Nafn: GuðbjörgTölvupóstfang: gben(hja)hive.isAfmælisdagur: Sami dagur og EinsteinStaðsetning: ReykjavíkFaðir: LilliMóðir: AinaUppáhalds bíómynd(ir): Rocky Horror Picture ShowUppáhalds tónlist: Paul Oscar, U2Uppáhalds manneskjur: Ég og Gunnar:)Uppáhalds matur: Kjúklingur "a la allt"Tenglar
clockhere
|
Blogg / BlogEr eitthvað að gerast? 4.3.2010Bara komin Mars...Jesús hvað ég er eitthvað lítið fyrir að blogga síðustu marga mánuðina...úff úff, en svona er þetta nú bara. Hér er allta frábært að frétta, nóg að gera hjá okkur í vinnunni eins og er, og koma aukaverkefni inn öðru hvoru hjá honum Gunna, sem er bara frábært, þó svo að nú er karlinn að bóna og ég sé hann þá voðalega lítið nema kannski yfir hábjarta daginn. Annars var ég loksins að klára peysulufsuna sem ég hætti mér út í í endaðann desember, jamm ég prjóna ekki hratt, og mjög lítið á hverjum degi, aðallega yfir fréttunum á kvöldin, en þreytist fljótt í hægri hendinni eftir að ég fór í aðgerðina fyrir löngu á henni, verð voðalega fljótt þreytt í henni, sem er svo sem í lagi ég sætti mig frekar við það en að vera með þessa viðurstyggilegu kúlu á hnúanum sem var að gera mig bilaða af sársauka...Kannski ég skelli inn mynd af peysunni bara hérna á eftir. Svo náttúrulega hef ég líka prjónað eina tösku til þæfingar, er að hekla dúk núna, ég er komin með þessa pest sem allir eru að fá....prjónapestina, það er betra heldur en að fá svínapestina svo sem:) Hérna hefur nú snjóað alveg slatta í henni reykjavík, þó svo aðalgöturnar eru orðnar auðar þá er nú slatti af snjó enn eftir. Ég hafði þá skoðun þegar ég bjó út á landi að reykvíkingar væru fáráðar í umferð þegar kæmi smá snjór hjá þeim, þá bara væri allt stopp hérna fyrir sunnan, og hló mikið af þeim þegar fréttirnar sögðu frá bílalestum á leið í vinnu þegar kom smá föl í henni reykjavík!! En eftir að hafa átt heima hérna í smá tíma, þá bara finnst mér ekkert skrítið að það myndist hérna bílastopp og lestir alveg hægri vinstri á morgnana, þegar það loksins kemur snjór og hálka. Aðalumferðagöturnar hérna hafa nú ekki undan flest alla daga þegar fólk er á leið í vinnu á morgnana og úr vinnu á kvöldin, og svo þegar það bætist ofaná lélegt skyggni, hálka og snjókoma verða aðstæður bara verri... það er svolitið öðruvísi út á landi þegar t.d 100 bílar þurfa að komast í vinnu á morgnana en hérna í bænum eru þeir nokkur tugir þúsunda sem þurfa að keyra á sama tíma í vinnu.....og sem betur fer þá meiga þeir eiga það (reykvíkingar) að þeir fara varlega þegar aðstæður leyfa ekki brjálæðisakstur með meiru eins og þegar götur eru auðar....þeir eru nefnilega margir að tapa sér stundum á bensíngjöfinni , sérstaklega að sikk sakka á milli bíla þegar umferð er þung, helvítis asnarnir.....fuff ufffff og ekki tala um ef það er úrhellis rigning...þá fyrst þeim gaman að keyra hratt!!! Og eftir kreppu, ef svo má segja, finnst mér alveg frábært að sjá alla litlu bílana komna á göturnar t.d Yaris og golf(búið að leggja jeppunum) þeir aka nú verst, eigendurnir halda sjálf sagt að fyrst þeir eiga "sparneytinn" bíl núna þá er í lagi að þenja þá eins og brjálaða meri.....já ég segji ykkur að þeir bílar sem taka alltaf fram úr á vinstri akrein þessa dagana eru Yarisar á yfir 100 km hraða...amm þvílíkur sparnaður það er í bensíneyðslunni......Bjánar! en jæja óver and át.....p.s Formúlan er að fara byrja!!!!!!!! Flettingar í dag: 16 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 46 Gestir í gær: 7 Samtals flettingar: 314038 Samtals gestir: 39935 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 13:23:42 |